Fara beint í efnið

6. september 2026

Fjölmennt á Ljósanótt

Mikill mannfjöldi sótti viðburði Ljósanætur í gær, allt frá morgni til kvölds. Hátíðin náði hápunkti í gærkvöldi þegar stórtónleikarnir fóru fram og flugeldasýning

Eftir að formlegri dagskrá lauk í gærkvöldi voru mörg verkefni hjá lögreglu sem tengdust ölvun. Eftir nóttina eru fjórir sem gista fangageymslur, m.a. vegna líkamsárása og ölvunar. Enginn slasaðist alvarlega.

Lögreglu bárust að öðru leyti tilkynningar vegna óláta, ölvunar og eignaspjalla. Ölvun og ólæti ungmenna var nokkur. Að öðru leyti hefur Ljósanæturhátíðin farið vel fram og við vonum að allir hafi skemmt sér vel.