Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

27. ágúst 2025

Fjögurra vikna síbrotagæsla

Karlmaður á fimmtugsaldri, sem setið hefur í gæsluvarðhaldi í tengslum við þjófnað á hraðbanka í Mosfellsbæ í síðustu viku, var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í fjögurra vikna síbrotagæslu, eða til 24. september, að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Rannsókn lögreglunnar á þjófnaðinum hefur gengið vel og hefur maðurinn játað sök.Hraðbankinn, með peningana innanborðs, fannst í umdæminu í fyrradag eins og áður hefur komið fram. Fólksbifreið sem leitað var að í þágu rannsóknarinnar er sömuleiðis fundin.

Við rannsókn málsins hafa borist ýmsar ábendingar, ekki síst myndefni frá almenningi, og fyrir það vill lögreglan þakka sérstaklega.