Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

6. október 2010

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fjársvikamál – einn laus úr gæsluvarðhaldi

Karl á fertugsaldri, sem var handtekinn í síðasta mánuði í tengslum við rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á umfangsmiklu fjársvikamáli, hefur verið látinn laus úr gæsluvarðhaldi. Fimm aðilar sitja hinsvegar enn í gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknarinnar en um verulega fjármuni er að ræða í þessu fjársvikamáli.