1. september 2021
1. september 2021
Fiskveiðiáramót 2021/2022
Fiskistofa hefur úthlutað aflamarki fyrir fiskveiðiárið 2021/2022. Heildarúthlutun er 322 þúsund ÞÍG tonn sem er lækkun um 37.000 ÞÍG tonn frá því í fyrra.
Fiskistofa hefur úthlutað aflamarki fyrir fiskveiðiárið 2021/2022. Heildarúthlutun er 322 þúsund ÞÍG tonn sem er lækkun um 37.000 ÞÍG tonn frá því í fyrra. Úthlutun í þorski er tæplega 209 þúsund tonn og dregst saman um 32 þúsund tonn frá fyrra ári. Úthlutun í ýsu er rúm 39 þúsund tonn og lækkar um 3 þúsund tonn milli ára. Skýrist það m.a. á 8 þúsund tonna aukaúthlutun sem var í byrjun sumars.
Aflamarki er úthlutað á 424 skip í eigu 308 aðila. Fimmtíu stærstu útgerðarfyrirtækin fá 90,60% af úthlutuðu aflamarki og hækkar það hlutfall lítillega frá í fyrra. Mestu úthlutun fær Brim hf. til sinna skipa eða 9,33% af heildinni, næst kemur Samherji Ísland ehf. með 7%, þá FISK Seafood ehf. með 6,22% og Þorbjörn hf. með 5,34%. Það skipið er Sólberg ÓF-1 (2917) í eigu Ramma sem fær mestu aflamarki úthlutað, eða 10.000 ÞÍG tonnum. Guðmundur í Nesi ER-13 (2626) í eigu Brim hf. fær næst mest, u.þ.b. 8.600 ÞÍG tonn. Er þetta lækkun frá því í fyrra.
Bátar með krókaaflamark eru nú 242 og fækkar um 3.
Skipum í aflamarkskerfinu fjölgar um 5 á milli ára og eru nú 181.
Bátar undir 15 m og 30 btn. fá úthlutað rúmlega 45 þúsund ÞÍG tonnum.
Bátar 15 m, 30 btn. og stærra fá úthlutað 376,3 þúsund ÞÍG tonnum.
Skel- og rækjubætur
Alls 1.852 ÞÍG tonnum er úthlutað sem skel- og rækjubótum og er það sama magn og í fyrra og fara þau til 46 báta en þeir voru 50 á fyrra ári.
Tekið skal fram að enn eru fáein skip ófrágengin og getur því úthlutun til skipa enn breyst lítillega. Einnig er vakin er athygli á að síðar á árinu verður úthlutað aflamarki í deilistofnum og ekki er óalgengt að aukið sé við aflamark í uppsjávarfiski. Benda má sérstaklega á að engri loðnu var úthlutað að þessu sinni. Ætla má að heildaraflamark einstakra skipa og hafna og innbyrðishlutfall þeirra breytist í kjölfar frekari úthlutana þegar líður á fiskveiðiárið.