18. ágúst 2008
18. ágúst 2008
Þessi frétt er meira en árs gömul
Fimmtán líkamsárásir
Nokkuð var um pústra á höfuðborgarsvæðinu um helgina en fimmtán líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglunnar. Nær allar teljast minniháttar en í fáeinum tilvikum sátu árásarþolar eftir með glóðarauga eða brotna tönn. Einn karl fór heim úr miðborginni bólginn og með brotin gleraugu en sá var sleginn í andlitið af konu. Aðspurð sagði konan að maðurinn hefði verið dónalegur og því hefði hún brugðist við með þessum hætti.