Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

15. mars 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fimm teknir fyrir ölvunarakstur

Fimm ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í Reykjavík í gær en þeir voru stöðvaðir víðsvegar í borginni. Þetta voru þrír karlar, einn 17 ára og tveir á fimmtugsaldri, og tvær konur, 44 og 62 ára. Einn þessara ökumanna hafði þegar verið sviptur ökuleyfi.