Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

23. ágúst 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fimm óku undir áhrifum fíkniefna

Um helgina voru fimm ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Fjórir þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi. Einn var tekinn á laugardag og fjórir á sunnudag. Þetta voru fjórir karlar á aldrinum 20-28 ára og ein kona, 29 ára. Tveir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.