Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

28. mars 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fimm óku undir áhrifum fíkniefna

Um helgina voru fimm ökumenn teknir í Reykjavík fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna en þeir voru stöðvaðir víðsvegar í borginni. Þrír þeirra voru teknir á laugardag og tveir á sunnudag. Þetta voru allt karlar en þeir eru á aldrinum 18-30 ára. Hjá þremur þeirra fundust fíkniefni.