21. febrúar 2011
21. febrúar 2011
Þessi frétt er meira en árs gömul
Fimm óku undir áhrifum fíkniefna
Um helgina voru fimm ökumenn teknir í Reykjavík fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna en þeir voru stöðvaðir víðsvegar í borginni. Einn var tekinn á föstudagskvöld, tveir á laugardag og tveir á sunnudag. Þetta voru þrír karlar á aldrinum 24-33 ára og tvær konur, 27 og 33 ára en sú eldri hafði þegar verið svipt ökuleyfi.