25. janúar 2011
25. janúar 2011
Þessi frétt er meira en árs gömul
Fimm óku undir áhrifum fíkniefna
Um helgina voru fimm ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Þrír þeirra voru stöðvaðir í Kópavogi og tveir í Reykjavík. Einn var stöðvaður á föstudagskvöld, tveir á laugardag og tveir sömuleiðis á sunnudag. Þetta voru allt karlar en þeir eru á aldrinum 18-28 ára. Einn þeirra hafði þegar verið sviptur ökuleyfi.