23. janúar 2012
23. janúar 2012
Þessi frétt er meira en árs gömul
Fimm óku undir áhrifum fíkniefna
Um helgina voru fimm ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Þrír þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Hafnarfirði og Garðabæ. Fjórir voru teknir á laugardag og einn á sunnudag. Þetta voru fjórir karlar á aldrinum 23-36 ára og ein kona, 24 ára. Þrír þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og einn hefur aldrei öðlast ökuréttindi.