18. mars 2008
18. mars 2008
Þessi frétt er meira en árs gömul
Fimm áflogaseggir brutu gegn lögreglusamþykkt Reykjavíkurborgar
Fimm karlar, sem flestir eru um tvítugt, brutu gegn lögreglusamþykkt Reykjavíkurborgar um helgina. Þeir voru allir handteknir í miðborginni aðfaranótt sunnudags en mennirnir létu ófriðlega og neituðu að hlýða fyrirmælum. Þremur þeirra hafði áður verið vísað út af skemmtistað vegna slagsmála. Hinir tveir slógust þegar lögreglan kom á vettvang og fengust ekki til að láta af þeirri iðju.