Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

30. júní 2009

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fíkniefni og peningaþvætti – einn laus úr haldi

Karl á sextugsaldri, sem setið hefur í gæsluvarðhaldi í tengslum við rannsókn lögreglu á innflutningi fíkniefna og peningaþvætti, er laus úr haldi. Tveir aðrir karlar, annar á þrítugsaldri en hinn á fimmtugsaldri, hafa setið í gæsluvarðhaldi vegna gruns um aðild að sama máli. Sá eldri hefur nú hafið afplánun vegna annarra mála en gæsluvarðhaldsúrskurður yfir þeim yngri rennur út á morgun.