Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

28. apríl 2015

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fíkniefni og neyslutól haldlögð

Lögreglan á Suðurnesjum lagði um helgina hald á fíkniefni í húsnæði í Reykjanesbæ. Megna kannabislykt lagði á móti lögreglumönnum þegar þeir komu á staðinn. Í stofunni voru nokkrir einstaklingar og fíkniefni og neyslutól lágu á stofuborði. Að auki reyndist einn þeirra vera með meint amfetamín í fórum sínum.

Þá hafði lögregla afskipti af tveimur ökumönnum vegna gruns um fíkniefnaakstur. Annar þeirra játaði neyslu og sýnatökur á lögreglustöð staðfestu neyslu hins ökumannsins.