Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

12. október 2009

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fíkniefni og fjármunir fundust við húsleit

Fíkniefni fundust við húsleit í Kópavogi á föstudag. Um var að ræða kannabisefni, amfetamín og kókaín en samanlagt var þetta vel á annað hundrað grömm. Á sama stað var einnig lagt hald á töluvert af peningum sem grunur leikur á að séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu. Húsráðandi, karl á þrítugsaldri, var handtekinn í þágu rannsóknarinnar en hann hefur bæði játað að eiga fíkniefnin og að þau hafi verið ætluð til sölu.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.