2. ágúst 2006
2. ágúst 2006
Þessi frétt er meira en árs gömul
Fíkniefni innvortis
Lögreglan í Vestmannaeyjum lagði hald á um 8 gr. af hassi, 2 gr. af amfetamíni og eina E-töflu sem karlmaður bar innvortis við komu Herjólfs til Vestmannaeyja í gærkvöldi. Efnin fundust eftir að fíkniefnaleitarhundurinn Sjarmi hafði sýnt manninum áhuga og í framhaldi af því var farið með manninn á Heilbrigðisstofnun Vestmananeyja í röntgenmyndatöku og komu efnin þá í ljós. Við yfirheyrslu viðurkenndi maðurinn að vera eigandi efnanna og telst málið upplýst.