Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

16. febrúar 2015

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fíkniefni haldlögð í Vestmannaeyjum

Við venjubundið eftirlit lögreglu við komu Herjólfs til Vestmannaeyja að kvöldi 13. febrúar sl. hafði lögreglan afskipti af karlmanni á þrítugsaldri vegna gruns um að hann væri með fíkniefni meðferðis. Við leit lögreglu fundust um 100 gr. af maríhúana, 50 gr. af amfetamíni og um 2 gr. af kókaíni og viðurkenndi maðurinn að vera eigandi efnanna. Maðurinn var í framhaldi af því handtekinn og vistaður í fangageymslu. Maðurinn hefur ítrekað komið við sögu lögreglu vegna hinna ýmsu mála m.a. fíkniefnamála. Málið telst að mestu upplýst.