Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

13. desember 2006

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fíkniefni haldlögð á Ísafirði

Í gær (12. desember 2006) lagði lögreglan á Ísafirði hald á 50 gr. af hassi, hjá rúmlega tvítugum manni á Ísafirði. Sá maður var í haldi lögreglunnar í sólarhring vegna gruns um fíkniefnamisferli, sem var til rannsóknar hjá lögreglunni á Ísafirði. Rannsókn málsins laut að meintri fíkniefnadreifingu á norðanverðum Vestfjörðum undanfarnar vikur og mánuð. Maðurinn er grunaður um að hafa sótt nokkuð meira magn fíkniefna, en lagt var hald á, til Reykjavíkur nýlega og flutt þau til Ísafjarðar í þeim tilgangi að selja þau þar og í nágrenni. Í tengslum við rannsókn þessa máls naut lögreglan á Ísafirði aðstoðar lögreglunnar í Reykjavík, en þar var annar karlmaður handtekinn og yfirheyrður vegna sama máls. Sá maður er grunaður um að hafa komið að efnisöfluninni.

Maðurinn, sem lögreglan á Ísafirði var með í haldi, hefur ekki áður komið við sögu vegna fíkniefnamála. Honum var sleppt lausum í gærkveldi. Hins vegar hefur maðurinn, sem lögreglan í Reykjavík yfirheyrði, áður komið við sögu vegna fíkniefnamála. Honum var sleppt í dag. Málið telst vera upplýst.