14. október 2009
14. október 2009
Þessi frétt er meira en árs gömul
Fíkniefni fundust við húsleit í miðborginni
Fíkniefni fundust við húsleit í miðborginni í gærkvöld. Um var að ræða 80 grömm af marijúana og var það ætlað til sölu. Þrír karlar á þrítugsaldri voru handteknir í þágu rannsóknarinnar.
Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.