Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

18. mars 2010

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fíkniefni fundust við húsleit í Kópavogi

Fíkniefni fundust við húsleit í fjölbýlishúsi í Kópavogi í gærkvöld. Um var að ræða um 300 grömm af marijúana. Einn íbúanna, karl á þrítugsaldri, játaði aðild sína að málinu.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.