Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

3. desember 2009

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fíkniefni fundust við húsleit í Hafnarfirði

Fíkniefni fundust við húsleit í íbúð í Hafnarfirði síðdegis í gær. Um var að ræða um 100 grömm af marijúana. Húsráðandi, karl á þrítugsaldri, játaði aðild sína að málinu. Sá hefur áður komið við sögu hjá lögreglu.

Sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.