23. október 2008
23. október 2008
Þessi frétt er meira en árs gömul
Fíkniefni fundust við húsleit í Hafnarfirði
Fíkniefni fundust við húsleit í Hafnarfirði í morgun en um var að ræða bæði amfetamín og kókaín, samtals um 200 grömm, 25 e-töflur og neysluskammta af hassi. Húsráðandi, karl á sjötugsaldri, hefur ítrekað komið við sögu lögreglu vegna sölu og dreifingar fíkniefna. Húsleitin var framkvæmd að undangengnum dómsúrskurði en aðgerðin er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna.
Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.