Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

14. september 2009

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fíkniefni fundust við húsleit í Grafarholti

Fíkniefni fundust við húsleit í íbúð í Grafarholti síðdegis á föstudag. Um var að ræða um 100 grömm af kannabis. Tveir menn á þrítugsaldri voru handteknir og yfirheyrðir í tengslum við rannsókn málsins. Þeir hafa áður komið við sögu hjá lögreglu.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.