Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

10. september 2008

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fíkniefni fundust við húsleit í Breiðholti

Fíkniefni fundust við húsleit í Breiðholti í gærmorgun en um var að ræða bæði amfetamín og marijúana. Á sama stað var einnig lagt hald á umtalsvert magn af sterum. Kona á fertugsaldri var handtekin í þágu rannsóknar málsins. Fíkniefnaleitarhundur frá tollinum var notaður við þessa aðgerð sem er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.