14. desember 2007
14. desember 2007
Þessi frétt er meira en árs gömul
Fíkniefni fundust við húsleit
Karl og tvær konur, sem öll eru á miðjum aldri, voru handtekin í húsleit í íbúð í miðborginni í gærkvöld en þar fundust ætluð fíkniefni. Um var að ræða 200 grömm af hassi og lítilræði af amfetamíni. Tveir fíkniefnaleitarhundar voru notaðir við leitina.
Um svipað leyti voru höfð afskipti af þremur piltum, 17-19 ára, sem allir eru grunaðir um fíkniefnamisferli. Til þeirra náðist á hafnarsvæði borgarinnar en þeir voru með ætluð fíkniefni í fórum sínum. Og í nótt var karl á þrítugsaldri handtekinn í Bankastræti. Í bíl hans fundust ætluð fíkniefni og riffill.