18. mars 2011
18. mars 2011
Þessi frétt er meira en árs gömul
Fíkniefni fundust við húsleit
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann fíkniefni við húsleit í íbúð í fjölbýlishúsi í Kópavogi í nótt. Um var að ræða bæði amfetamín og kannabis. Tveir karlar um fimmtugt voru handteknir í þágu rannsóknarinnar.
Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.