Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

6. mars 2007

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fíkniefni fundust við húsleit

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók karlmann á þrítugsaldri í gær en í vistaverum hans fundust ætluð fíkniefni. Talið er að þetta séu 250 gr af hassi og neyslumagn af kókaíni. Hjá manninum fannst einnig talsvert af fjármunum og voru þeir haldlagðir. Handtakan kom í kjölfar húsleitar að undangengnum úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur. Maðurinn hefur áður komið við sögu hjá lögreglu vegna fíkniefnabrota. Málið telst upplýst og fer nú til ákærumeðferðar.