Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

13. janúar 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fíkniefni fundust í Hafnarfirði

Fíkniefni fundust við húsleit í íbúð í Hafnarfirði í gær. Um var að ræða bæði amfetamín og marijúana en grunur leikur á að fíkniefnin hafi verið ætluð til sölu. Tveir karlar og ein kona voru handtekin í þágu rannsóknarinnar en fólkið er á þrítugsaldri.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.