Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

14. febrúar 2013

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fíkniefnasending til Ísafjarðar stöðvuð.

Í gær stöðvaði lögreglan fíkniefnasendingu sem átti að fara með áætlunarflugi frá Reykjavík til Ísafjarðar. Í sendingunni reyndist vera um 10 grömm af marihúana. Móttakandi sendingarinnar var handtekinn á Ísafirði og var hann færður á lögreglustöð til yfirheyrslu. Hann viðurkenndi að hafa átt von á fíkniefnum. Málið telst upplýst.

Um var að ræða samstarfsverkefni lögreglunnar á Vestfjörðum, á höfuðborgarsvæðinu og tollgæslunnar í Reykjavík. En tollgæslan lagði til fíkniefnaleitarhund. Lögreglan hvetur alla þá sem búa yfir upplýsingum hvers konar fíkniefnameðhöndlun að hafa samband í upplýsingasíma lögreglunnar, sem er 800 5005. Fullri nafnleynd er heitið.