10. nóvember 2010
10. nóvember 2010
Þessi frétt er meira en árs gömul
Fíkniefnasalar handteknir – hald lagt á marijúana og peninga
Tveir fíkniefnasalar voru handteknir í Reykjavík í fyrradag. Um var að ræða tvo karla á þrítugsaldri en við húsleit í híbýlum annars þeirra fannst talsvert magn af marijúana og peningar, vel á aðra milljón, sem er álitið að séu afrakstur fíkniefnasölu. Húsleitin var framkvæmd að undangengnum dómsúrskurði.
Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.