Fara beint í efnið

14. apríl 2026

Fíkniefnamál – þrír í gæsluvarðhaldi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Tollgæslan stóðu fyrir viðamiklum aðgerðum í gær í þágu rannsóknar á umfangsmiklu fíkniefnamáli. Í kjölfarið voru þrír menn úrskurðaðir í gæsluvarðhald, tveir í gærkvöld og einn í dag. Alls voru sex menn handteknir í fyrrnefndum aðgerðum, en þremur var fljótlega sleppt úr haldi lögreglu. Málið varðar innflutning á verulegu magni af sterkum fíkniefnum.