Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

3. október 2024

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fíkniefnamál – þrír í gæsluvarðhaldi

Þrír voru í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á fíkniefnamáli. Þremenningarnir voru handteknir í umdæminu í gær, en þá var enn fremur farið í húsleitir á höfuðborgarsvæðinu. Lagt var hald á nokkuð af fíkniefnum í aðgerðum lögreglu, en ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.