Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

14. október 2008

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fíkniefnamál – þrír í áframhaldandi gæsluvarðhaldi

Þrír karlar hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 21. október að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Mennirnir, sem eru á aldrinum 17-28 ára, eru grunaðir um aðild að fíkniefnamáli sem kom upp fyrr í mánuðinum. Þá fundu tollyfirvöld ætluð fíkniefni, amfetamín og kannabisefni, í sendingu sem kom til landsins frá Póllandi. Þremenningarnir voru handteknir við afhendingu sendingarinnar.