Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

8. febrúar 2006

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fíkniefnamál – Lögreglan á Ísafirði.

Um kl.16:00 í dag handtók lögreglan á Ísafirði rúmlega tvítugan karlmann í Álftafirði. Maðurinn var grunaður um að hafa svikið út vörur á tveimur stöðum á Ísafirði og ætlað að komast hjá greiðslu. Við leit í bifreið mannsins fann lögreglan smáræði af kannabisefnum sem voru haldlögð. Maðurinn var yfirheyrður vegna allra þessara þriggja mála og var sleppt nú rétt áðan.

Maðurinn hefur áður komið við sögu lögreglu vegna ýmissa brota.