Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

26. september 2007

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fíkniefnamál í Reykjavík – einn áfram í gæsluvarðhaldi

Karl um fertugt hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til mánudagsins 1. október nk. en hann er grunaður um innflutning á kókaíni í fljótandi formi. Karl á fertugsaldri var sömuleiðis handtekinn í tengslum við rannsókn málsins en sá er laus úr haldi.

Niðurstaða efnagreiningar, sem unnin var af Háskóla Íslands, liggur fyrir. Samkvæmt henni samsvarar efnið sem um ræðir um 600 gr af kókaíni.