Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

27. apríl 2007

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fíkniefnamál í Reykjavík

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu haldlagði 120 grömm af ætluðu marijúana í fyrirtæki í austurborginni í gær. Á sama stað fannst lítilræði af ætluðu amfetamíni í neysluskömmtum. Karlmaður um fertugt, sem hefur áður komið við sögu hjá lögreglu, var handtekinn vegna málsins sem telst að mestu upplýst.

Á öðrum stað í austurborginni fundust ætluð fíkniefni í vistaverum karlmanns á líkum aldri og í íbúð í miðborginni fundust sömuleiðis ætluð fíkniefni. Í seinna málinu er karlmaður á þrítugsaldri grunaður um fíkniefnamisferli.