Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

25. júní 2010

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fíkniefnamál í Mosfellsbæ

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann fíkniefni við húsleit í bílskúr í Mosfellsbæ um hádegisbil í gær. Um var að ræða bæði amfetamín og marijúana. Húsráðandi, karl á fertugsaldri, hefur áður komið við sögu hjá lögreglu.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.