Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

24. febrúar 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fíkniefnamál í Kópavogi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann fíkniefni við húsleit í fjölbýlishúsi í Kópavogi í gær. Um var að ræða allnokkuð af kannabisefnum sem voru ætluð til sölu. Karl á þrítugsaldri var handtekinn í þágu rannsóknarinnar og játaði hann aðild sína að málinu.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.