Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

1. júlí 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fíkniefnamál í Grafarvogi

Karlmaður á fimmtugsaldri var handtekinn í gær eftir að talsvert magn af ætluðu amfetamíni fannst á heimili hans í Grafarvogi. Lögreglan telur að fíkniefnin sem voru um hálft kíló hafi átt að fara í sölu. Maðurinn sem áður hefur komið við sögu hjá lögreglu hefur verið yfirheyrður og viðurkennt brot sitt.