Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

16. desember 2008

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fíkniefnamál – gæsluvarðhald til 22. desember

Átján ára piltur hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 22. desember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Fjórir aðrir voru úrskurðaðir í farbann. Fimmmenningarnir, sem allir eru pólskir, eru grunaðir um aðild að fíkniefnamáli sem snýst um innflutning á talsverðu magni af e-töflum. Það voru tollyfirvöld sem fundu e-töflurnar en þær voru sendar hingað frá Póllandi. E-töflurnar voru haldlagðar í síðustu viku.