Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

21. apríl 2009

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fíkniefnamál – gæsluvarðhald til 12. maí

Þrír karlar voru í dag í Héraðsdómi Austurlands úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 12. maí. Mennirnir voru handteknir um borð í skútunni SIRTAKI á sunnudagskvöld en þrír aðrir karlar voru á sunnudag úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna rannsóknar sama máls. Um er að ræða innflutning á um 109 kílóum af fíkniefnum en efnin voru haldlögð á Austurlandi um síðustu helgi. Fimm mannanna eru íslenskir en sá sjötti er hollenskur. Það er lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sem fer með rannsókn málsins.