Fara beint í efnið

9. júní 2026

Fíkniefnamál – fimmmenningarnir áfram í gæsluvarðhaldi

Fimm karlar voru í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaðir í áframhaldandi tíu daga gæsluvarðhald, eða til föstudagsins 19. júní, á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á innflutningi fíkniefna. Mennirnir, tveir Íslendingar og þrír erlendir ríkisborgarar, voru handteknir í aðgerðum lögreglu í Reykjavík og Hveragerði eins og fram hefur komið. Fíkniefnin voru flutt til landsins með Norrænu, en um er að ræða kókaín og amfetamín.

Rannsókn málsins miðar vel, en hún hefur verið unnin í samstarfi nokkurra lögregluembætta, auk Tollgæslunnar.