Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

25. nóvember 2010

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fíkniefnamál – farbann til 22. desember

Karl á þrítugsaldri hefur verið úrskurðaður í farbann til 22. desember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Maðurinn, sem er erlendur ríkisborgari og sat í gæsluvarðhaldi í nokkrar vikur, er grunaður um aðild að máli sem er til rannsóknar hjá lögreglu og snýr að ætlaðri framleiðslu fíkniefna, sölu þeirra og dreifingu. Fjórir aðrir karlar sátu um tíma í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar sama máls og voru síðar úrskurðaðir í farbann til 8. desember. Fjórmenningarnir eru sömuleiðis allir erlendir ríkisborgarar. Þeir eru á þrítugs- og fertugsaldri.