11. apríl 2020
11. apríl 2020
Þessi frétt er meira en árs gömul
Fíkniefnamál – áframhaldandi gæsluvarðhald
Fjórir karlar hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 5. maí að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á fíkniefnamáli. Mennirnir voru handteknir í aðgerðum lögreglunnar í og við Hvalfjarðargöng í lok febrúar, en lagt hefur verið hald á talsvert af fíkniefnum í tengslum við málið.
Rannsókn málsins miðar vel.