Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

17. maí 2010

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fíkniefnamál á Seyðisfirði – þrír handteknir

Þrír hollenskir karlmenn eru í haldi lögreglu vegna rannsóknar hennar á fíkniefnamáli. Mennirnir eru allir í áhöfn skips sem kom til hafnar á Seyðisfirði á laugardag en leit var gerð um borð í skipinu. Að beiðni sýslumannsembættisins á Seyðisfirði fer lögreglan á höfuðborgarsvæðinu nú með rannsókn málsins.

Rannsóknin er unnin í samvinnu við lögregluyfirvöld í Hollandi og tengist haldlagningu á þremur tonnum af marijúana þar í landi. Aðgerðin hér er víðtæk en að henni hafa komið lögreglu- og tollyfirvöld á Austurlandi auk lögreglumanna frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og embætti ríkislögreglustjóra sem og tollvarða frá Tollstjóranum í Reykjavík.

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.