3. september 2008
3. september 2008
Þessi frétt er meira en árs gömul
Fíkniefnamál á Seyðisfirði – hass og amfetamín
Umtalsvert magn fíkniefna fannst í fólksbifreið sem kom með Norrænu til Seyðisfjarðar í gær. Um er að ræða 19,7 kíló af hassi og 1,7 kíló af amfetamíni. Karl á sjötugsaldri var handtekinn vegna rannsóknar málsins og hefur hann verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 16. september. Rannsókn málsins er í höndum fíkniefnadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.