14. október 2009
14. október 2009
Þessi frétt er meira en árs gömul
Fíkniefnamál á höfuðborgarsvæðinu
Tvö fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld og nótt. Fyrst fundust fíkniefni við húsleit í Hafnarfirði og var karl á fertugsaldri handtekinn í þágu rannsóknarinnar. Og eftir miðnætti handtók lögreglan tvo pilta um tvítugt á Kringlumýrarbraut. Þeir voru á stolnum bíl og létu sér ekki segjast fyrr en eftir stutta eftirför. Piltarnir voru báðir undir áhrifum fíkniefna.