Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

28. júlí 2006

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fíkniefnaleitarnámskeiði lokið

Haraldur Johannessen, ríkislögreglustjóri, Arnar Guðmundsson skólastjóri Lögregluskóla ríkisins og Rolf von Kogh, yfirhundaþjálfari hjá norsku tollgæslunni, ásamt umsjónarmönnum námskeiðsins, kennara, prófdómurum og nemendum.

Föstudaginn 28. júlí lauk námskeiði fyrir fíkniefnaleitarhunda lögreglu og umsjónarmenn þeirra, sem staðið hefur yfir í tæpan mánuð. Námskeiðið var á vegum embættis ríkislögreglustjóra og Lögregluskóla ríkisins. Umsjónarmaður og kennari á námskeiðinu var Rolf von Krogh yfirhundaþjálfari hjá norsku tollgæslunni. Honum til aðstoðar við kennsluna var Steinar Gunnarsson, varðstjóri hjá lögreglunni á Eskifirði, en hann er jafnframt yfirhundaþjálfari hjá embætti ríkislögreglustjóra. Prófdómarar voru Ester Pálmadóttir, yfirtollvörður á Keflavíkurflugvelli og Sigurður Jónasson, lögreglufulltrúi hjá Lögregluskóla ríkisins. Fjórir hundaþjálfarar luku náminu að þessu sinni.