13. nóvember 2008
13. nóvember 2008
Þessi frétt er meira en árs gömul
Fíkniefnaframleiðsla í Hafnarfirði – áframhaldandi gæsluvarðhald til 27. nóvember
Tveir karlar voru í héraðsdómi í dag úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 27. nóvember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þeir eru grunaðir um aðild að ætlaðri framleiðslu fíkniefna í Hafnarfirði. Mennirnir, sem eru á þrítugs- og fertugsaldri, hafa áður komið við sögu hjá lögreglu, m.a. vegna fíkniefnamála. Þeir hafa kært úrskurðinn til Hæstaréttar.