30. október 2008
30. október 2008
Þessi frétt er meira en árs gömul
Fíkniefnaframleiðsla í Hafnarfirði – áframhaldandi gæsluvarðhald
Þrír karlar voru í dag úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 13. nóvember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þeir eru grunaðir um aðild að ætlaðri framleiðslu fíkniefna í Hafnarfirði. Mennirnir, sem eru á þrítugs- og fertugsaldri, hafa allir áður komið við sögu hjá lögreglu, m.a. vegna fíkniefnamála.